Hús og heimili

 

Opinber skjalasöfn á Norðurlöndum sameinuðust árið 2001 um að halda árlegan kynningardag, annan laugardag í nóvember.

Eitt markmiða norræna skjaladagsins er að efla vitund fólks um að skjalasöfnin séu tryggir vörslustaðir skjala af hvaða tagi sem er. Fundargerðabækur, bréf, myndir og fleiri skjöl af ýmsu tagi eiga erindi á skjalasöfn. Því er fólk hvatt til að hafa samband við næsta héraðsskjalasafn, eða Þjóðskjalasafn, ef það hefur undir höndum skjöl sem það veit ekki hvað gera á við, eða vill koma í örugga vörslu.

Yfirskrift skjaladagsins árið 2017 var „Hús og heimili“. Fjallað var um skjöl og skjalaflokka sem tengjast húsum, húsagerð, híbýlum, íbúum, heimilishaldi og fleiru sem tengja má við yfirskriftina.

 

 Sigurhæðir, áður en settur var kvistur

Í tilefni skjaladagsins var opnuð sýning í anddyri hússins Brekkugötu 17. Sýningarefnið var í takt við yfirskrift dagsins, hús og heimili, en sýndar voru fjölbreyttar heimildir sem notast má við þegar saga húsa er könnuð. Sýnd voru skjöl og myndir sem varða húsin og heimilin Lundargötu 10, Sandhóla í Eyjafjarðarsveit, Sigurhæðir á Akureyri og Steinsstaði í Öxnadal.  Sýningin stóð út nóvember.

Þjóðskjalasafn Íslands og héraðsskjalasöfnin standa sameiginlega að gerð vefsíðunnar skjaladagur.is og þar birtast á hverju ári margvíslegir pistlar frá söfnunum undir yfirskrift hvers árs fyrir sig.

Hér má sjá framlag safnsins á skjaladagsvefnum 2017

Hér má sjá fleiri myndir frá sýningunni

 

Til baka